Kjördæmadagar 3.–6. október 2022
Kjördæmadagar eru 3.–6. október og verða því engir þingfundir á Alþingi þessa vikuna. Kjördæmadagana nýta þingmenn til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnafólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri.
Næsti þingfundur verður haldinn mánudaginn 10. október samkvæmt starfsáætlun Alþingis.